Barnavernd
Börn eiga rétt á vernd og umönnun. Foreldrum ber að sýna börnum sínum umhyggju og nærfærni og annast þau eins og best hentar hag og þörfum þeirra, búa þeim viðunandi uppeldisaðstæður og gæta velfarnaðar þeirra. Öllum ber okkur að sýna börnum virðingu og umhyggju.
Markmið barnaverndar er að tryggja að börn sem búa við óviðunandi aðstæður eða börn sem stofna heilsu sinni og þroska í hættu fái nauðsynlega aðstoð. Þetta er einkum gert með því að styrkja foreldra í uppeldishlutverki sínu. Öllum foreldrum og þeim sem hafa samskipti við börn stendur til boða almenn ráðgjöf hjá félagsráðgjafa. Ef nauðsyn þykir er unnt að bjóða upp á ýmis önnur stuðningsúrræði sem barnaverndarþjónustan hefur yfir að ráða.
Öllum er skylt að tilkynna til barnaverndar ef þeir hafa ástæðu til að ætla að barn:
a. búi við óviðunandi uppeldisaðstæður,
b. verði fyrir ofbeldi eða annarri vanvirðandi háttsemi eða
c. stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu.
Sérstök tilkynningaskylda er lögð á fólk sem starfar með börnum, t.d. starfsmenn skóla og heilsugæslu, að ógleymdri lögreglunni.
Á dagvinnutíma getur fólk snúið sér beint til starfsmanna barnaverndar í ráðhúsinu með tilkynningar, spurningar eða vangaveltur varðandi barnaverndarmál með því að hringja í 455 6000.
Fólk getur hringt í Neyðarlínuna 112 og tilkynnt um óviðunandi aðstæður barna. Neyðarlínan er opin allan sólarhringinn. Starfsmenn 112 meta hvort henni verði komið strax á framfæri til starfsmanns barnaverndarþjónustu eða hvort beðið verði til næsta virka dags. Sá sem hringir gefur upp nafn sitt, nafn og dvalarstað barnsins, ástæður tilkynningarinnar og aðrar upplýsingar sem starfsmenn neyðarlínu spyrja um. Þeir hafa fengið sérstaka þjálfun hjá Barna- og fjölskyldustofu til að sinna þessu verkefni.
Nokkur atriði sem foreldrar, afar og ömmur, frændur og frænkur eða nágrannar, skyldu hafa í huga þegar þau velta fyrir sér hvort tilkynna skuli um aðstæður barns eða unglings: Eru vísbendingar um:
- líkamlega og andlega vanrækslu eða ofbeldi gegn börnum
- kynferðislega misnotkun
- að ung börn séu skilin eftir gæslulaus
- eru foreldrar í fíkniefnaneyslu
- er hegðun barnsins mjög ábótavant, t.d. afbrot, árásargirni og ofbeldishegðun
- er um að ræða áfengis-og vímuefnaneysla unglinga eða barna ?
Flestir vita út frá brjóstviti sínu hvort barn býr við óviðunandi aðstæður vegna vanrækslu, vanhæfni eða framferðis foreldra, eða hvort ástæða sé til að óttast að barn stefni heilsu sinni eða þroska í hættu með hegðun sinni.
Ef maður telur svo vera ber að hafa samband við barnavernd sem hefur það hlutverk að meta hvort ástæða sé til að blanda sér í málið og tryggja að barnið og foreldrarnir fái nauðsynlega aðstoð.
Starfsmenn Neyðarlínu 112 og starfsmenn barnaverndarþjónustu eru bundnir trúnaðarskyldu. Í barnaverndarlögunum er einnig fjallað um nafnleynd þess sem tilkynnir. Almenningur, ættingjar eða aðrir nákomnir, geta óskað nafnleyndar gagnvart öðrum en starfsfólki barnaverndarþjónustu. Þá er slík beiðni virt nema sérstakar ástæður mæli gegn því. Opinberir aðilar t.d. skóli, leikskóli, sjúkarhús eða heilbrigðisstofnun, tilkynna í embættis nafni og njóta því ekki nafnleyndar.