Fara í efni

Gönguskarðsárvirkjun 1 - stöðvarhús 223553 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1508202

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar - 13. fundur - 03.09.2015

Tekin fyrir byggingarleyfisumsókn Jónasar V. Karelssonar kt. 130851-3049, hjá Verkís hf., fyrir hönd Gönguskarðsár ehf. kt. 650106-1130. Umsókn um leyfi til að byggja stöðvarhús Gönguskarðsárvirkjunar á lóðinni Gönguskarðsá 1 landnúmer 223553. Framlögð hönnunargögn unnin á VERKÍS verkfræðistofu, undirrituð af Jónasi V. Karelssyni hönnunarstjóra. Byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráform og veitir jafnframt umbeðið byggingarleyfi.