Fara í efni

Reglur um afslátt af fasteignaskatti til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega 2016

Málsnúmer 1511148

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 718. fundur - 19.11.2015

Lögð fram tillaga um að fjárhæðir í reglum sveitarfélagsins um afslátt af fasteignaskatti, til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega á árinu 2016, sem eiga lögheimili í Sveitarfélaginu Skagafirði, verði eftirfarandi.

4. grein verður svo hljóðandi:
Afsláttur af fasteignaskatti er tekjutengdur og er allt að 58.000 kr. á árinu 2016. Afsláttur er reiknaður til bráðabirgða við upphafsálagningu og er hlutfallslegur að teknu tilliti til allra skattskyldra tekna, þ.m.t. eigna- og fjármagnstekna samkvæmt síðasta skattframtali, þ.e. vegna tekna ársins 2014. Hámarks afsláttarupphæð við upphafsálagningu er 29.000 kr. Þegar staðfest skattframtal liggur fyrir vegna tekna ársins 2015 verður afsláttur endurskoðaður og leiðréttur. Miðað er við sameiginlegar tekjur hjóna og samskattaðs sambýlisfólks.

5.gr. verði eftirfarandi:
Tekjumörk eru sem hér segir:
Fyrir einstaklinga:
a) með tekjur allt að 2.883.000 kr. fullur afsláttur skv. 4. gr.
b) með tekjur yfir 3.888.000 kr. enginn afsláttur.

Fyrir hjón og samskattað sambýlisfólk:
a) með tekjur allt að 3.888.000 kr. fullur afsláttur skv. 4. gr.
b) með tekjur yfir 5.265.000 kr. enginn afsláttur.

Ef tekjur eru á framangreindu bili er veittur hlutfallslegur afsláttur.

Byggðarráð samþykkir tillöguna og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 334. fundur - 09.12.2015

Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 27 "Reglur um afslátt af fasteignaskatti til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega 2016" Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 334. fundur - 09.12.2015

Lögð fram tillaga um fjárhæðir í reglum sveitarfélagsins um afslátt af fasteignaskatti, til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega á árinu 2016, sem eiga lögheimili í Sveitarfélaginu Skagafirði, sem samþykkt var á 718. fundi byggðarráðs 19. nóvember 2015

4. grein verður svo hljóðandi:
Afsláttur af fasteignaskatti er tekjutengdur og er allt að 58.000 kr. á árinu 2016. Afsláttur er reiknaður til bráðabirgða við upphafsálagningu og er hlutfallslegur að teknu tilliti til allra skattskyldra tekna, þ.m.t. eigna- og fjármagnstekna samkvæmt síðasta skattframtali, þ.e. vegna tekna ársins 2014. Hámarks afsláttarupphæð við upphafsálagningu er 29.000 kr. Þegar staðfest skattframtal liggur fyrir vegna tekna ársins 2015 verður afsláttur endurskoðaður og leiðréttur. Miðað er við sameiginlegar tekjur hjóna og samskattaðs sambýlisfólks.

5.gr. verði eftirfarandi:
Tekjumörk eru sem hér segir:
Fyrir einstaklinga:
a) með tekjur allt að 2.883.000 kr. fullur afsláttur skv. 4. gr.
b) með tekjur yfir 3.888.000 kr. enginn afsláttur.

Fyrir hjón og samskattað sambýlisfólk:
a) með tekjur allt að 3.888.000 kr. fullur afsláttur skv. 4. gr.
b) með tekjur yfir 5.265.000 kr. enginn afsláttur.

Ef tekjur eru á framangreindu bili er veittur hlutfallslegur afsláttur.

Tillagan borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.