Fara í efni

Vinnumarkaðsráð 2015-2019

Málsnúmer 1511245

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 721. fundur - 03.12.2015

Lagðar fram til kynningar upplýsingar um skipun Eyglóar Harðardóttur félags- og húsnæðismálaráðherra á fulltrúum í Vinnumarkaðsráðs Norðurlands vestra 2015-2019. Hlutverk ráðsins er m.a. að skila skýrslu til stjórnar Vinnumálastofnunar um stöðu atvinnumála í nóvember ár hvert ásamt tillögum um þær vinnumarkaðsaðgerðir sem mælt er með að lögð verði áhersla á árið eftir. Enn fremur skal ráðið vera hlutaðeigndi þjónustustöð Vinnumálastofnunar til ráðgjafar um skipulag og val á vinnumarkaðsúrræðum. Formaður ráðsins er Valgarður Hilmarsson.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 334. fundur - 09.12.2015

Afgreiðsla 721. fundar byggðaráðs staðfest á 334. fundi sveitarstjórnar 9. desember 2015 með níu atkvæðum.