Fara í efni

Kjörstaðir við Alþingiskosningar 2016

Málsnúmer 1608251

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 756. fundur - 08.09.2016

Lagt er til að svohljóðandi tillögum verði vísað til sveitarstjórnar:

Lagt er til að kjörstaðir í Sveitarfélaginu Skagafirði vegna kosninga til Alþingis sem ráðgerðar eru 29. október 2016 verði eftirtaldir:
Skagasel, Bóknámshús FNV, Félagsheimilið Árgarður, Grunnskólinn á Hólum, Félagsheimilið Höfðaborg, Grunnskólinn á Sólgörðum, Varmahlíðarskóli og Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki.

Einnig samþykkir sveitarstjórn að fela byggðarráði að afgreiða til fullnaðar eftirtalin verkefni vegna alþingiskosninganna: að staðfesta kjörskrá og úrskurða um breytingar á kjörskrá og ráða til lykta öðrum málum sem kunna að heyra undir verksvið sveitarstjórnar í sambandi við kosningar.

Byggðarráð samþykkir tillöguna.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 346. fundur - 20.09.2016

Vísað frá 756. fundi byggaðrráðs þann 8. september 2016, til samþykktar í sveitarstjórn, svohljóðandi tillaga.

"Lagt er til að kjörstaðir í Sveitarfélaginu Skagafirði vegna kosninga til Alþingis sem ráðgerðar eru 29. október 2016 verði eftirtaldir:Skagasel, Bóknámshús FNV, Félagsheimilið Árgarður, Grunnskólinn á Hólum, Félagsheimilið Höfðaborg, Grunnskólinn á Sólgörðum, Varmahlíðarskóli og Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki.

Einnig samþykki sveitarstjórn að fela byggðarráði að afgreiða til fullnaðar eftirtalin verkefni vegna alþingiskosninganna: að staðfesta kjörskrá og úrskurða um breytingar á kjörskrá og ráða til lykta öðrum málum sem kunna að heyra undir verksvið sveitarstjórnar í sambandi við kosningar."

Forseti bar ofangreinda tillögu undir atkvæði, samþykkt með átta atkvæðum.