Byggðarráð Skagafjarðar - 760
Málsnúmer 1610006F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 347. fundur - 26.10.2016
Fundargerð 760. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 347. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 760 Lögð fram tillaga um að Bryndís Lilja Hallsdóttir verði fulltrúi Sveitarfélagsins Skagafjarðar í samráðshópi um Sóknaráætlun Norðurlands vestra í stað Laufeyjar Kristínar Skúladóttur sem látið hefur af störfum fyrir sveitarfélagið.
Byggðarráð samþykkir tillöguna.
Sigríður Svavarsdóttir vék af fundi undir þessum dagskrárlið. Bókun fundar Afgreiðsla 760. fundar byggðarráðs staðfest á 347. fundi sveitarstjórnar 26. október 2016 með átta atkvæðum. Sigríður Svavarsdóttir óskar bókað að hún taki ekki þátt í atkvæðagreiðslu. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 760 Lögð fram tillaga um viðauka nr. 7 við fjárhagsáætlun 2016. Lagt er til að auka fjárheimildir málaflokks 21 - Sameiginlegur kostnaður um 1.500.000 kr. og málaflokk 27 - Óvenjulegir liðir um 1.500.000 kr.
Byggðarráð samþykkir framlagðan viðauka nr. 7 við fjárhagsáætlun 2016. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr 10, "Viðauki 7 við fjárhagaáætlun 2016". Samykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 760 Með tilvísun í 758. fund byggðarráðs frá 29. september 2016 samþykkir byggðarráð að stofna húsnæðissjálfseignarstofnunina Skagfirskar leiguíbúðir og leggja fram stofnfé að upphæð 1.000.000 kr.
Byggðarráð samþykkir einnig fyrirliggjandi drög að stofnsamþykkt fyrir Skagfirskar leiguíbúðir hses.
Jafnframt samþykkir byggðarráð að eftirtalin verði í stjórn og varastjórn þar til unnt er að kjósa stjórn í samræmi við ákvæði samþykkta stofnunarinnar:
Stjórn: Gísli Sigurðsson, Þórdís Friðbjörnsdóttir og Sigfús Ingi Sigfússon. Varastjórn: Sigríður Svavarsdóttir, Stefán Vagn Stefánsson og Ásta Pálmadóttir.
Byggðarráð samþykkir að framkvæmdastjóri með pókúru verði Margeir Friðriksson og endurskoðandi verði Kristján Jónasson hjá KPMG ehf. þar til að stjórn stofnunarinnar hefur tekið aðra ákvörðun.
Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 11 "Framkvæmd nýrra laga um almennar íbúðir." Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 760 Lögð fram styrkbeiðni dagsett 6. október 2016 frá stjórn Snorrasjóðs, vegna Snorraverkefnisins sumarið 2017. Verkefnið er rekið af Þjóðræknifélagi Íslendinga og Norræna félaginu á Íslandi og lýtur að því að veita ungu fólki á aldrinum 18-28 ára, af íslenskum ættum í Norður-Ameríku tækifæri til að kynnast rótum sínum á Íslandi í 6 vikna sumarverkefni.
Byggðarráð þakkar erindið, en getur ekki orðið við styrkbeiðninni. Bókun fundar Afgreiðsla 760. fundar byggðarráðs staðfest á 347. fundi sveitarstjórnar 26. október 2016 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 760 Lagt fram bréf dagsett 10. október 2016 frá ReykjavíkurAkademíunni ses. þar sem óskað er eftir fjárstuðningi vegna málþingsins Fjölmiðlun í almannaþágu, sem haldið verður 19. nóvember n.k.
Byggðarráð þakkar erindið, en getur ekki orðið við styrkbeiðninni. Bókun fundar Afgreiðsla 760. fundar byggðarráðs staðfest á 347. fundi sveitarstjórnar 26. október 2016 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 760 Sjá trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 760. fundar byggðarráðs staðfest á 347. fundi sveitarstjórnar 26. október 2016 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 760 Lagt fram til kynningar bréf til sveitarstjórna, dagsett 3. október 2016 frá innanríkisráðuneytinu varðandi form og efni viðauka við fjárhagsáætlun. Bókun fundar Afgreiðsla 760. fundar byggðarráðs staðfest á 347. fundi sveitarstjórnar 26. október 2016 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 760 Lagðar fram til kynningar fjárhagsupplýsingar úr rekstri sveitarfélagsins fyrir tímabilið janúar-ágúst 2016. Bókun fundar Afgreiðsla 760. fundar byggðarráðs staðfest á 347. fundi sveitarstjórnar 26. október 2016 með níu atkvæðum.