Veitunefnd - 31
Málsnúmer 1612005F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 350. fundur - 18.01.2017
Fundargerð 31. fundar veitunefndar lögð fram til afgreiðslu á 350. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Gunnsteinn Björnsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Veitunefnd - 31 Bragi Þór Haraldsson frá Verkfræðistofunni Stoð fór yfir frumhönnun á hitaveitu um Lýtingsstaðahrepp.
Gert er ráð fyrir að lokahönnun liggi fyrir í lok árs og að haldinn verði kynningarfundur í janúar. Bókun fundar Afgreiðsla 31. fundar veitunefndar staðfest á 350. fundi sveitarstjórnar 18. janúar 2017 með níu atkvæðum.