Landbúnaðarnefnd - 188
Málsnúmer 1612009F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 350. fundur - 18.01.2017
Fundargerð 188. fundar landbúnaðarnefndar lögð fram til afgreiðslu á 350. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Gunnsteinn Björnsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Landbúnaðarnefnd - 188 Málið áður á dagskrá 186. fundi landbúnaðarnefndar, 5. september 2016. Lagt fram bréf dagsett 1. júlí 2016 frá Benedikt Benediktssyni landeiganda Stóra-Vatnsskarðs og Birgi Haukssyni og Loga Má Birgissyni landeigendum Fjalls, varðandi girðingu á milli heimalanda framangreindara jarða og afréttar. Á fund nefndarinnar undir þessum dagskrárlið komu Benedikt Benediktsson og Birgir Hauksson til viðræðu um málið.
Landbúnaðarnefnd samþykkir að skoða málið nánar út frá þeim möguleikum sem liggja fyrir. Bókun fundar Afgreiðsla 188. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 350. fundi sveitarstjórnar 18. janúar 2017 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðarnefnd - 188 Lagt fram bréf dagsett 19. september 2016 frá Pálma Jónssyni, kt. 200980-5149 og Maríu Eymundsdóttur, kt. 040684-2209, eigendum Huldulands í Hegranesi, landnr. 223299, þar sem þau óska eftir umsögn sveitarstjórnar vegna stofnunar lögbýlis. Ætlunin er að rækta býflugur, skóg, blóm og matjurtir á landinu.
Landbúnaðarnefnd gerir ekki athugasemdir við stofnun lögbýlisins og vísar til staðfestingar sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr.12 "Hulduland landnr.223299 - stofnun lögbýlis" Samþykkt samhljóða. -
Landbúnaðarnefnd - 188 Lagt fram bréf dagsett 23. nóvember 2016 frá Landgræðslu ríkisins þar sem falast er eftir styrk til samstarfsverkefnisins "Bændur græða landið“ vegna ársins 2016.
Landbúnaðarnefnd þakkar erindið en getur ekki orðið við því að styrkja verkefnið. Bókun fundar Afgreiðsla 188. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 350. fundi sveitarstjórnar 18. janúar 2017 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðarnefnd - 188 Lögð fram drög að skiptingu framlaga ársins 2017 til fjallskilasjóða.
Landbúnaðarnefnd samþykkir fyrirliggjandi drög með áorðnum breytingum. Samtals er úthlutað framlögum að upphæð 3.718.800 kr. Bókun fundar Afgreiðsla 188. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 350. fundi sveitarstjórnar 18. janúar 2017 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðarnefnd - 188 Lögð fram umsókn um leyfi til búfjárhalds frá Steinunni Rósu Guðmundsdóttur, kt. 311273-3379, dagsett 9. desember 2016. Sótt er um leyfi fyrir 7 hross.
Landbúnaðarnefnd samþykkir leyfi fyrir framangreindum fjölda hrossa. Bókun fundar Afgreiðsla 188. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 350. fundi sveitarstjórnar 18. janúar 2017 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðarnefnd - 188 Lögð fram umsókn um leyfi til búfjárhalds frá Sigurði Hólmari Kristjánssyni, kt. 150272-5139, dagsett 9. desember 2016. Sótt er um leyfi fyrir 10 hross.
Landbúnaðarnefnd samþykkir leyfi fyrir framangreindum fjölda hrossa. Bókun fundar Afgreiðsla 188. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 350. fundi sveitarstjórnar 18. janúar 2017 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðarnefnd - 188 Lögð fram umsókn um leyfi til búfjárhalds frá Sigríði Ingólfsdóttur, kt. 260160-4519, dagsett 9. desember 2016. Sótt er um leyfi fyrir 10 hænur og einn hana á Nöfum og 25 kindur.
Landbúnaðarnefnd samþykkir leyfi fyrir framangreindum fjölda hænsnfugla á Nöfum og 25 kindur. Bókun fundar Afgreiðsla 188. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 350. fundi sveitarstjórnar 18. janúar 2017 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðarnefnd - 188 Lögð fram umsókn um leyfi til búfjárhalds frá Sveini Sigfússyni, kt. 050846-4239, dagsett 9. desember 2016. Sótt er um leyfi fyrir 5 hross.
Landbúnaðarnefnd samþykkir leyfi fyrir framangreindum fjölda hrossa. Bókun fundar Afgreiðsla 188. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 350. fundi sveitarstjórnar 18. janúar 2017 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðarnefnd - 188 Lagt fram bréf dagsett 11. desember 2016 frá Ólafi Atla Sindrasyni og Ara Jóhanni Sigurðssyni, þar sem þeir lýsa undrun á áhuga- og framkvæmdaleysi af hálfu fjallskilastjórnar Staðarafréttar, er kemur að framkvæmd fjallskila eftir að lögbundnum fjallskilum er lokið.
Af gefnu tilefni beinir landbúnaðarnefnd því til fjallskilastjórna sveitarfélagsins að búpeningur sem vart verður við í afréttum og heimalöndum eftir síðustu lögbundnu leitir að hausti, verði sóttur eins fljótt og auðið er. Sérstaklega er það mikilvægt á þeim svæðum þar sem upp hafa komið riðutilfelli nú í haust svo komið verði í veg fyrir náinn samgang fjár. Bókun fundar Afgreiðsla 188. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 350. fundi sveitarstjórnar 18. janúar 2017 með níu atkvæðum.