Fara í efni

Erindi vegna hitaveitu frá land- og húseigendum á utanverðu Hegranesi

Málsnúmer 1612141

Vakta málsnúmer

Veitunefnd Svf Skagafjarðar - 32. fundur - 06.01.2017

Lagt var fyrir fundinn erindi frá land- og húseigendum í utanverðu Hegranesi. Í erindinu er óskað eftir viðræðum við veitunefnd vegna framkvæmdaáætlunar Skagafjarðarveitna.

Veitunefnd mun boða fulltrúa hópsins á fund þegar vinnu við úttekt á þeim svæðum sem ekki eru inn í núgildandi framkvæmdáætlun er lokið. Vinna við úttektina er á lokastigum.