Fara í efni

Melsgil - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 1705240

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 785. fundur - 08.06.2017

Lagður fram tölvupóstur úr máli 1705387, dagsettur 30. maí 2017 frá embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Félagsheimilisins Melsgils., kt. 460269-5719, um leyfi til að vera með svefnpokagistingu í flokki II í Félagsheimilinu Melsgili, 551 Sauðárkróki.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar - 48. fundur - 14.06.2017

Með tölvubréfi, dagsettu 30. maí 2017 óskar Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra eftir umsögn um umsókn Ingibjargar H. Hafstað kt.190451-4539, f.h. Félagsheimilisins Melsgils kt. 460269-5719, um leyfi til að vera með svefnpokagistingu í flokki II í Félagsheimilinu Melsgili (214-0250). Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfis.