Fara í efni

Skagfirðingabraut 26 - Umsókn um byggingar- og stöðuleyfi.

Málsnúmer 1709085

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar - 55. fundur - 08.09.2017

Atli Már Óskarsson, f.h. Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra Sauðárkróki, óskar eftir leyfi til þess að byggja borholuskýli skv. meðfylgjandi aðaluppdrætti gerðum á Stoð ehf. verkfræðistofu af Atla Gunnari Arnórssyni, dags. 23. ágúst 2017. Uppdráttur er nr. A-101 í verki nr. 1037. Fyrirhugað er að byggja húsið á lóð verknámshúss Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki, Skagfirðingabraut 26, en þaðan verður húsið flutt í heilu lagi. Erindið samþykkt, byggingarleyfi veitt.