Fara í efni

Hverhólar 1 (225557) - Umsókn um byggingarleyfi.

Málsnúmer 1709125

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar - 56. fundur - 28.09.2017

Indriði Einarsson fh. Skagafjarðarveitna sækir um byggingarleyfi fyrir 40,3 ferm dæluhúsi sem staðsett verður í landi Hverhóla í Lýtingsstaðahreppi hinum forna.Húsið verður byggt á lóð sveitarfélagsins Borgarflöt 27 og þaðan flutt á steyptan sökkul á lóð úr landi Hverhóla. Þá er einnig sótt um byggingarleyfi fyrir borholuhúsi og loftskiljutank á sömu lóð úr landi Hverhóla.Framlagðir uppdrættir gerðir hjá Stoð ehf. verkfræðistofu af Braga Þór Haraldssyni. Verknúmer 1036, dagsetning uppdrátta 28. og 29 ágúst 2017. Erindið samþykkt, byggingarleyfi veitt.