Fara í efni

Sölvanes 146238 - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 1803239

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 822. fundur - 05.04.2018

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 23. mars 2018 frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra, úr máli nr. 1803295. Óskað er umsagnar um umsókn Eydísar Magnúsdóttur fyrir hönd Smiðjugrundar ehf. um leyfi til að reka gististað í flokki II að Sölvanesi, 561 Varmahlíð. Sótt er um gistingu fyrir 10 manns í eldra íbúðarhúsi og 4 í frístundahúsi á jörðinni.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar - 72. fundur - 09.07.2018

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 23. mars 2018 frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra, úr máli nr. 1803295. Óskað er umsagnar um umsókn Eydísar Magnúsdóttur kt. 310373-5249, fyrir hönd Smiðjugrundar ehf. kt. 650414-1010 um leyfi til að reka gististað í flokki II að Sölvanesi, 561 Varmahlíð. Sótt er um gistingu fyrir 10 manns í eldra íbúðarhúsi og gistingu fyrir 4 í frístundahúsi á jörðinni. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við umsóknina.