Fara í efni

Flæðar- Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 1807037

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar - 72. fundur - 09.07.2018

Lagður fram tölvupóstur úr máli 1807057, dagsettur 4. júlí 2018, frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra. Óskað er umsagnar um umsókn Thelmu Knútsdóttur kt. 081069-3609, f.h. Unglingaráðs Körfuknattleiksdeildar Tindastóls kt. 640816-0740 um tækifærisleyfi skv. 17. gr. laga nr. 85/2007. Umsóknin er vegna veitingasölu og útidagskrár sem halda á á Flæðunum við Skagfirðingabraut á Sauðárkróki í tengslum við Landsmót UMFÍ sem fyrirhugað er að halda dagana 13.til 15. júlí nk. á Sauðárkróki. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við umsóknina.