Umhverfis- og samgöngunefnd - 144
Málsnúmer 1809013F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 374. fundur - 18.10.2018
Fundargerð 144. fundar umhverfis- og samgöngunefndar lögð fram til afgreiðslu á 374. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Ingibjörg Huld Þórðardóttir kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Umhverfis- og samgöngunefnd - 144 Tekið var fyrir erindi frá Fiskistofu vegna umsóknar Fiskmarkaðs Íslands um endurvigtunarleyfi á starfstöð markaðarins að Háeyri 6 á Sauðárkróki.
Í erindinu er óskað eftir umsögn hafnaryfirvalda í Skagafirði varðandi beiðni um endurvigtunarleyfi.
Umhverfis- og samgöngunefnd gerir ekki athugasemdir við beiðni Fiskmarkaðs Íslands um endurvigtunarleyfi.
Bókun fundar Afgreiðsla 144. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 374. fundi sveitarstjórnar 18. október 2018 með níu atkvæðum. -
Umhverfis- og samgöngunefnd - 144 Lagt var fram til kynningar tilkynning frá Fiskistofu um útgáfu endurvigtunarleyfis fyrir Fiskmarkað Íslands með starfsstöð að Háeyri 6 á Sauðárkróki.
Leyfið gildir til 7. september 2021. Bókun fundar Afgreiðsla 144. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 374. fundi sveitarstjórnar 18. október 2018 með níu atkvæðum. -
Umhverfis- og samgöngunefnd - 144 Lögð var fyrir fundinn fyrirspurn frá Steypustöð Skagafjarðar varðandi framlengingu á samningi um snjómokstur á Sauðárkróki fyrir veturinn 2018 til 2019.
Nefndin felur sviðstjóra að svara erindinu. Bókun fundar Afgreiðsla 144. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 374. fundi sveitarstjórnar 18. október 2018 með níu atkvæðum. -
Umhverfis- og samgöngunefnd - 144 Lögð var fyrir fundinn fundargerð frá opnun tilboða í verkið Melatún Sauðárkróki - jarðvegsskipti og fráveitulagnir.
Tilboð í verkið voru opnuð þann 11. september sl. og bárust eftirfarandi tilboð í verkið;
Norðurtak ehf. 21.000.000.-
Steypustöð Skagafjarðar ehf. 18.888.800.-
Vinnuvélar Símonar ehf. 21.582.940.-
Víðimelsbræður ehf. 20.536.046.-
Þórður Hansen ehf. 24.097.122.-
Kostnaðaráætlun verksins var unnin af Verkfræðistofunni Stoð ehf. og hljóðaði hún upp á 21.679.900.-
Sviðstjóra er falið að ganga frá samningi við lægstbjóðanda, Steypustöð Skagafjarðar ehf.
Ingibjörg Huld Þórðardóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins. Bókun fundar Afgreiðsla 144. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 374. fundi sveitarstjórnar 18. október 2018 með átta atkvæðum. Ingibjörg Huld Þórðardóttir óskar bókað að hún sitji hjá við afgreiðslu málsins. -
Umhverfis- og samgöngunefnd - 144 Lagt var fyrir fundinn erindi frá Umhverfisstofnun varðandi tillögur/áætlanir sveitarstjórna um úrbætur í fráveitumálum stærri þéttbýla (2.000 persónueiningar eða meira).
Í erindinu fer Umhverfisstofnun fram á að sveitarfélagið geri grein fyrir tillögum/áætlunum sínum um að koma frárennslismálum á Sauðárkróki í það horf að þau uppfylli ákvæði nýrrar reglugerðar um fráveitur og skólp.
Sviðstjóra er falið að vinna að svari við erindinu. Bókun fundar Afgreiðsla 144. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 374. fundi sveitarstjórnar 18. október 2018 með níu atkvæðum. -
Umhverfis- og samgöngunefnd - 144 Farið var yfir sorphirðumál í dreifbýli.
Ómar Kjartansson frá Ó.K. Gámaþjónustu og Flokku ehf sat þennan lið fundar.
Bókun fundar Afgreiðsla 144. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 374. fundi sveitarstjórnar 18. október 2018 með níu atkvæðum.