Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 59
Málsnúmer 1809017F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 374. fundur - 18.10.2018
Fundargerð 59. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar lögð fram til afgreiðslu á 374. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Gísli Sigurðsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 59 Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir að fulltrúar sveitarfélagsins í Samráðshóp um framtíðarstarfsemi í Sólgarðaskóla verði Ragnheiður Halldórsdóttir og Gunnsteinn Björnsson. Bókun fundar Afgreiðsla 59. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 374. fundi sveitarstjórnar 18. október 2018 með níu atkvæðum.
-
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 59 Lagt fram til kynningar endurskoðað ársyfirlit 2017 vegna rekstrarstarfsemi í Glaumbæ. Bókun fundar Afgreiðsla 59. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 374. fundi sveitarstjórnar 18. október 2018 með níu atkvæðum.
-
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 59 Lögð fram styrkbeiðni frá Skagafjarðarhraðlestinni vegna Lummudaga 2018.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir að styrkja Lummudaga um 200.000 kr. sem teknar eru af lið 05890.
Jafnframt samþykkir nefndin að bjóða forsvarsmönnum Skagafjarðarhraðlestarinnar til fundar við nefndina og ræða framtíð Lummudaga. Bókun fundar Afgreiðsla 59. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 374. fundi sveitarstjórnar 18. október 2018 með átta atkvæðum. Gísli Sigurðsson óskar bókað að hann sitji hjá við afgreiðslu málsins. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 59 Lögð fram styrkbeiðni, dagsett 10.september 2018 frá Söru Rut Arnardóttur vegna leiksýningar/uppistands.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir að styrkja Söru Rut um 30.000 kr. sem teknar eru af fjárhagslið 05890. Bókun fundar Afgreiðsla 59. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 374. fundi sveitarstjórnar 18. október 2018 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 59 Lögð fram styrkbeiðni, dagsett 7.september 2018 frá Jóel Sæmundssyni vegna verkefnisins Landsbyggðin og leikhús á árinu 2019.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir að vísa erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar 2019. Bókun fundar Afgreiðsla 59. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 374. fundi sveitarstjórnar 18. október 2018 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 59 Lagt var fyrir erindi, vísað frá 825.fundi Byggðarráðs til umsagnar Atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar, vegna styrkbeiðni um minnismerki á Hofsósi um fyrstu vesturfarana.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd er því fylgjandi að minnismerkið verði reist. Bókun fundar Afgreiðsla 59. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 374. fundi sveitarstjórnar 18. október 2018 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 59 Lagður fram til kynningar rammi fjárhagsáætlunar 2019 vegna málaflokka 05-menningarmál og 13-atvinnumál. Bókun fundar Afgreiðsla 59. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 374. fundi sveitarstjórnar 18. október 2018 með níu atkvæðum.