Fara í efni

Öldustígur 15 - Umsókn um byggingarleyfi.

Málsnúmer 1903042

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar - 83. fundur - 08.04.2019

Guðni Ólafsson og Edda María Valgarðsdóttir sækja um leyfi til að einangra og klæða utan bílskúr á lóðinni númer 15 við Öldustíg á Sauðárkróki. Klæðningarefni Canexel. Fyrir liggur samþykki meðeiganda í Öldustíg 15 og eiganda aðliggjandi bílskúrs að Öldustíg 13. Erindið samþykkt, byggingarleyfi veitt.