Fara í efni

Suðurgata 7 Sauðárkróki - umsókn um leyfi fyrir heitum potti á lóð

Málsnúmer 1904202

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar - 84. fundur - 26.04.2019

Indriði Þór Einarsson kt. 110279-5749 og Laufey Kristín Skúladóttir kt. 081079-3239, eigendur einbýlishúss númer 7 við Suðurgötu á Sauðárkróki sækja um leyfi fyrir setlaug á lóð hússins. Setlauginni verður komið fyrir á hellulagðri stétt innan lóðar. Setlaugin verður lokuð með læsanlegu loki meðan hún er ekki í notkun.
Meðfylgjandi teikning gerir grein fyrir staðsetningu laugarinnar á lóðinni.
Erindið samþykkt eins og það er fyrir lagt.