Veitunefnd - 64
Málsnúmer 1911002F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 390. fundur - 13.11.2019
Fundargerð 64. fundar veitunefndar frá 5. nóvember 2019 lögð fram til afgreiðslu á 390. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Gísli Sigurðsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Veitunefnd - 64 Farið var yfir drög að fjárhagsáætlun Skagafjarðarveitna fyrir árið 2020.
Veitunefnd samþykkir áætlunina og vísar til byggðaráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 64. fundar veitunefndar staðfest á 390. fundi sveitarstjórnar 13. nóvember 2019 níu atkvæðum. -
Veitunefnd - 64 Lögð var fram tillaga um 2,5% hækkun á gjaldskrá hitaveitu fyrir árið 2020.
Veitunefnd samþykkir tillöguna og vísar til byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 64. fundar veitunefndar staðfest á 390. fundi sveitarstjórnar 13. nóvember 2019 níu atkvæðum. -
Veitunefnd - 64 Lögð var fram tillaga að 2,5% hækkun á vatnsgjaldi, lágmarki og hámarki, samkvæmt 3. gr gjaldskrár vatnsveitu.
Önnur gjöld taka breytingum samkvæmt byggingavísitölu. Bókun fundar Afgreiðsla 64. fundar veitunefndar staðfest á 390. fundi sveitarstjórnar 13. nóvember 2019 níu atkvæðum. -
Veitunefnd - 64 Lögð var fram til kynningar hönnun og kostnaðaráætlun vegna lagningar hitaveitu um norðanvert Hegranes unnin af Braga Þór Haraldssyni á Verkfræðistofunni Stoð ehf.
Veitunefnd leggur til og vísar til byggðarráðs að lagning hitaveitu um norðanvert Hegranes verði á fjárhagsáætlun næsta árs. Bókun fundar Afgreiðsla 64. fundar veitunefndar staðfest á 390. fundi sveitarstjórnar 13. nóvember 2019 níu atkvæðum. -
Veitunefnd - 64 Lögð var fram til kynningar verkfundargerð 10. verkfundar vegna lagningar hitaveitu frá Hofsósi að Neðra Ási og Ásgarði.
Vinna við stofnlagnir er lokið og vinna við heimtaugar gengur vel. Vinnu við yfir 90% af lagningu hitaveitu er lokið og yfir 70% af ljósleiðaralögnum. Bókun fundar Afgreiðsla 64. fundar veitunefndar staðfest á 390. fundi sveitarstjórnar 13. nóvember 2019 níu atkvæðum. -
Veitunefnd - 64 Lagður var fram til kynningar listi yfir fyrirhugaðar framkvæmdir næstu ára hjá Skagafjarðarveitum. Bókun fundar Afgreiðsla 64. fundar veitunefndar staðfest á 390. fundi sveitarstjórnar 13. nóvember 2019 níu atkvæðum.