Fara í efni

Krithóll I land 2 - Umsókn um landskipti

Málsnúmer 2107084

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd - 409. fundur - 28.07.2021

Birna Guðmundsdóttir kt. 010741-3009, þinglýstur eigandi spildunnar Krithóls I, lands 2 (landnr. 223429) Skagafirði, sækir um leyfi til þess að skipta tveimur lóðum úr spildunni, líkt og sýnt er á meðfylgjandi afstöðuuppdrætti gerðum á Stoð ehf. verkfræðistofu af Atla Gunnari Arnórssyni. Númer uppdráttar er S-101 í verki nr. 759106, dags. 13. júlí 2021. Nöfn lóðanna á uppdrætti eru Kjarralundur og Bárulundur. Þá er sótt um heimild til að leggja veg að lóðunum, frá Skagafjarðarvegi (753) eins og sýnt er á uppdrættinum. Landskipti þessi samrýmast gildandi aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt.