Borgarteigur 1A - Umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2111217
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar - 132. fundur - 21.12.2021
Magnús Ingvarsson, kt. 171160-3249 og Thelma Sif Magnúsdóttir, kt. 100287-4049 f.h. Sif Snyrtistofu ehf., kt. 530220-0440 sækja um leyfi til að gera breytingar á innangerð og útliti Borgarteigs 1A. Breytingar varða glugga, hurð og milliloft í hluta hússins með aðgengi um stálstiga frá suðurhlið hússins, ásamt því að útbúa aðstöðu fyrir snyrtistofu á jarðhæð. Framlagður uppdráttur gerður á Verkís hf. verkfræðistofu af Magnúsi Ingvarssyni, kt. 171160-3249. Uppdráttur er númer A, dagsettur 17. nóvember 2021. Fyrir liggur samþykki eigenda Borgarteigs 1B, 1C, og 1D. Erindið samþykkt, bygginarleyfi veitt.