Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 95
Málsnúmer 2112021F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 420. fundur - 12.01.2022
Fundargerð 95. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar frá 20. desember 2021 lögð fram til afgreiðslu á 420. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 95 Erindinu vísað frá 922. fundi byggðarráðs þann 01. desember 2021 til umsagnar með tilliti til verndarsvæðis í byggð og starfsemi Byggðasafns Skagfirðinga.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd tekur vel í hugmyndir um flutning Maddömukots af núverandi lóð. Að höfðu samráði við forstöðumenn Byggðasafns Skagfirðinga og Héraðsskjalasafns Skagfirðinga leggur nefndin til að skoðað verði að flytja húsið á Tengilsreitinn, Aðalgötu 24. Nefndin leggur til að skýrsla um framtíðarsýn um sýningarhald Byggðasafns Skagfirðinga á Sauðárkróki sem var til umfjöllunar á 93. fundi nefndarinnar þann 21. október sl. verði höfð til hliðsjónar við hönnun svæðisins. Jafnframt bendir nefndin á að skylt er að leita umsagnar Minjastofnunar Íslands þar sem húsið er aldursfriðað. Nefndin óskar eftir því að vinna tillöguna um heildarhönnun svæðisins og nýtingu Maddömukots í samráði við byggðarráð. Bókun fundar Afgreiðsla 95. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 420. fundi sveitarstjórnar 12. janúar 2022 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 95 Tekinn fyrir samningur um rekstur félagsheimilisins Bifrastar við Króksbíó ehf., dagsettur 10. desember 2021.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir framlagðan samning. Bókun fundar Afgreiðsla 95. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 420. fundi sveitarstjórnar 12. janúar 2022 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 95 Tekinn fyrir samningur um rekstur Menningarhússins Miðgarðs við Miðtón ehf., dagsettur 30. nóvember 2021.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir framlagðan samning. Bókun fundar Afgreiðsla 95. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 420. fundi sveitarstjórnar 12. janúar 2022 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 95 Tekin fyrir styrkbeiðni frá Írísi Jónsdóttur f.h Jólatrésnefndar Fljótamanna dagsett 1.desember 2021.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir að styrkja Jólatrésnefnd Fljótamanna um 50.000 kr. með fyrirvara um að viðburðurinn verði haldinn. Bókun fundar Afgreiðsla 95. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 420. fundi sveitarstjórnar 12. janúar 2022 með níu atkvæðum. - .5 2112097 Samráðsfundur Fagráðs ferðaþjónustunnar á Norðurlandi vestra með sveitarfélögum - fundargerðAtvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 95 Lögð fram fundargerð frá samráðsfundi Fagráðs ferðaþjónustunnar á Norðurlandi vestra með sveitarfélögum. Bókun fundar Afgreiðsla 95. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 420. fundi sveitarstjórnar 12. janúar 2022 með níu atkvæðum.