Byggðarráð Skagafjarðar - 999
Málsnúmer 2201012F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 421. fundur - 09.02.2022
Fundargerð 999. fundar byggðarráðs frá 19. janúar 2022 lögð fram til afgreiðslu á 421. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Regína Valdimarsdóttir varaforseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 999 Byggðarráð samþykkir að Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri verði aðalmaður í stjórn Flokku ehf. frá og með 1. janúar 2022 og Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs til vara. Bókun fundar Varaforseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðar, Kjör aðal- og varamanns í stjórn Flokku ehf. Samþykkt samhljóða.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 999 Lögð fram svohljóðandi bókun 187. fundar umhverfis- og samgöngunefndar: "Lögð var fram tillaga að 3,5% hækkun gjaldskrár brunavarna og slökkvitækjaþjónustu fyrir árið 2022.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir tillöguna og vísar til byggðarráðs."
Byggðarráð samþykkir gjaldskrána og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Varaforseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðar, Gjaldskrá brunavarna, slökkvitækjaþjónusta 2022. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 999 Lögð fram svohljóðandi bókun 187. fundar umhverfis- og samgöngunefndar: "Lögð var fram tillaga að 3,5% hækkun gjaldskrár brunavarna fyrir árið 2022.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir tillöguna og vísar til byggðarráðs."
Byggðarráð samþykkir gjaldskrána og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Varaforseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðar, Gjaldskrá brunavarna 2022. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 999 Lagt fram bréf frá Kiwanisklúbbnum Drangey, dagsett 9. janúar 2022. Klúbburinn hefur stutt og kostað ristilspeglunarverkefni við HSN á Sauðárkróki síðastliðin sjö ár. Í bréfinu kemur fram að í nóvember 2021 hafi klúbbnum verið tilkynnt um að stöðva ætti verkefnið frá og með 1. janúar 2022 vegna þess að ríkið hyggðist hefja skimun á landsvísu á þessu ári og að verkefnið væri of kostnaðarsamt fyrir stofnunina. Kiwanisklúbburinn Drangey mun því ekki ganga frekar eftir greiðslum samkvæmt styrktarsamningum sem gerðir hafa verið. Þakkar klúbburinn fyrir veitta styrki til þessa verkefnis.
Byggðarráð vill koma á framfæri þakklæti til Kiwanisklúbbsins Drangeyjar fyrir að standa að þessu mikilvæga verkefni og ljóst er að það hefur borið góðan árangur. Bókun fundar Afgreiðsla 999. fundar byggðarráðs staðfest á 421. fundi sveitarstjórnar 9. febrúar 2022 með níu atkvæðum.