Tekin fyrir ályktun sem samþykkt var á aðalfundi Körfuknattleiksdeildar Tindastóls sem fram fór 20. júní 2022 þar sem skorað er á Skagafjörð sveitarfélag að hefjast þegar handa við stækkun á íþróttahúsinu á Sauðárkróki en að mati deildarinnar er umfang starfsemi í húsinu farið að hafa verulega hamlandi áhrif á íþrótta- og afreksstarf á Sauðárkróki. Körfuknattleiksdeild lýsir sig reiðubúna að tilnefna einstakling í vinnuhóp til verkefnisins. Byggðarráð þakkar fyrir erindið sem vísað verður til nýs starfshóps um stefnumörkun í íþróttamálum í sveitarfélaginu sem skipaður verður ásamt fulltrúum frá UMSS.
Byggðarráð þakkar fyrir erindið sem vísað verður til nýs starfshóps um stefnumörkun í íþróttamálum í sveitarfélaginu sem skipaður verður ásamt fulltrúum frá UMSS.