Fara í efni

Gilsbakkavegur

Málsnúmer 2208039

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 8. fundur - 10.08.2022

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 4. ágúst 2022 frá Agnari H. Gunnarssyni varðandi svokallaðan Gilsbakkaveg og liggur frá Stekkjarflötum fram að Gilsbakka, en vegurinn þarfnast lagfæringar. Akrahreppur fékk á árum áður greidda eingreiðslu frá Vegagerðinni til viðhalds þessum vegarspotta. Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs sat fundinn undir þessum dagsskrárlið.
Byggðarráð samþykkir að fela sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að láta gera nauðsynlegar lagfæringar á veginum sem greiddar verða úr "Gilsbakkasjóði". Jafnframt er umhverfis- og samgöngunefnd falið að leggja fram áætlun um viðhald og endurbætur á vegslóðanum fram að Merkigili um Merkigil.

Umhverfis- og samgöngunefnd - 14. fundur - 11.05.2023

Byggðarráð samþykkti á 8. fundi þann 10.08.2022 að fela sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að láta gera nauðsynlegar lagfæringar á veginum. Jafnframt er umhverfis- og samgöngunefnd falið að leggja fram áætlun um viðhald og endurbætur á vegslóðanum fram að Merkigili um Gilsbakkaland.

Nefndin ákveður að fé sem ráðstafað var frá Vegagerðinni til viðhalds á Gilsbakkavegi á sínum tíma verði varið til framkvæmdarinnar á þessu ári. Sviðsstjóra falið að fá verktaka í verkið og að framkvæmdum ljúki sem fyrst. Um er að ræða endurbætur á vegi frá Stekkjarflötum að Gilsbakka. Til ráðstöfunar í verkefnið eru 4 milljónir. Hvað varðar leiðina frá Gilsbakka að Merkigili mun nefndin leita eftir samstarfi við landeigendur.