Fara í efni

Reglur um úthlutun úr afreksíþróttasjóði

Málsnúmer 2208323

Vakta málsnúmer

Félagsmála- og tómstundanefnd - 6. fundur - 10.11.2022

Reglur Skagafjarðar um afreksíþróttasjóð unmenna í Skagafirði. Reglurnar eru uppfærðar með tilliti til sameiningar sveitarfélaganna í Skagafirði.
Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til byggðaráðs.

Byggðarráð Skagafjarðar - 23. fundur - 23.11.2022

Lagðar fram reglur Skagafjarðar um afreksíþróttasjóð ungmenna í Skagafirði. Reglurnar eru uppfærðar með tilliti til sameiningar sveitarfélaganna í Skagafirði. Erindinu vísað frá 6. fundi félagsmála- og tómstundanefndar til byggðarráðs.
Byggðarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 7. fundur - 14.12.2022

Vísað frá 23. fundi byggðarráðs frá 23. nóvember sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Lagðar fram reglur Skagafjarðar um afreksíþróttasjóð ungmenna í Skagafirði. Reglurnar eru uppfærðar með tilliti til sameiningar sveitarfélaganna í Skagafirði. Erindinu vísað frá 6. fundi félagsmála- og tómstundanefndar til byggðarráðs. Byggðarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Framlagðar reglur bornar upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykktar með níu atkvæðum.