Fara í efni

Verklagsreglur um rekstrarstyrki til íþrótta-, æskulýðs- og forvarnamála

Málsnúmer 2208324

Vakta málsnúmer

Félagsmála- og tómstundanefnd - 6. fundur - 10.11.2022

Starfsreglur Skagafjarðar varðandi úthlutun rekstrarstyrkja til íþrótta-, æskulýðs- og forvarnarmála, annara en UMSS. Reglurnar eru uppfærðar með tilliti til sameiningar sveitarfélaganna í Skagafirði.
Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til byggðaráðs.

Byggðarráð Skagafjarðar - 22. fundur - 16.11.2022

Starfsreglum Skagafjarðar varðandi úthlutun rekstrarstyrkja til íþrótta-, æskulýðs- og forvarnarmála, annara en UMSS, vísað til byggðarráðs frá 6. fundi félagsmála- og tómstundanefndar. Reglurnar eru uppfærðar með tilliti til sameiningar sveitarfélaganna í Skagafirði.
Byggðarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 7. fundur - 14.12.2022

Vísað frá 22. fundi byggðarráðs frá 16. nóvember sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Starfsreglum Skagafjarðar varðandi úthlutun rekstrarstyrkja til íþrótta-, æskulýðs- og forvarnarmála, annara en UMSS, vísað til byggðarráðs frá 6. fundi félagsmála- og tómstundanefndar. Reglurnar eru uppfærðar með tilliti til sameiningar sveitarfélaganna í Skagafirði. Byggðarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Framlagðar reglur bornar upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykktar með níu atkvæðum.