Skógræktarfélag Íslands - ályktun frá aðalfundi
Málsnúmer 2209282
Vakta málsnúmerByggðarráð Skagafjarðar - 15. fundur - 28.09.2022
Lagt fram til kynningar bréf dagsett 22. september 2022 frá Skógræktarfélagi Íslands. Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands, haldinn í Mosfellsbæ dagana 2.-4. september 2022, skorar á sveitarstjórnir landsins að vinna að skipulagsáætlunum í takt við stefnu stjórnvalda um skógrækt á landsvísu og eru sveitarfélög hvött til að koma sér upp skilvirkum verkferlum og forðast óþarfa tafir og kostnað við afgreiðslu framkvæmdaleyfa vegna skógræktar.
Skipulagsnefnd - 8. fundur - 06.10.2022
Lögð fram til kynningar ályktun frá aðalfundi Skógræktarfélags Íslands.