Lagður fram tölvupóstur dagsettur 25. október 2022 frá nefndasviði Alþingis. Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um úttekt á tryggingavernd í kjölfar náttúruhamfara, 231. mál. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 8. nóvember nk. Byggðarráð Skagafjarðar styður tillögu til þingsályktunar um úttekt á tryggingavernd í kjölfar náttúruhamfara. Löngu tímabært er að leggja mat á núverandi kerfi og hvernig það þjónar hagsmunum íbúa landsins sem best þegar hamfarir eiga sér stað.
Byggðarráð Skagafjarðar styður tillögu til þingsályktunar um úttekt á tryggingavernd í kjölfar náttúruhamfara. Löngu tímabært er að leggja mat á núverandi kerfi og hvernig það þjónar hagsmunum íbúa landsins sem best þegar hamfarir eiga sér stað.