Fara í efni

Reglur um framkvæmd frístundaþjónustu fyrir fötluð börn og ungmenni samkv. lögum 382018

Málsnúmer 2211062

Vakta málsnúmer

Félagsmála- og tómstundanefnd - 6. fundur - 10.11.2022

Reglur Skagafjarðar um framkvæmd frístundaþjónustu fyrir fötluð börn og ungmenni samkvæmt lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Reglurnar eru uppfærðar með tilliti til sameiningar sveitarfélaganna í Skagafirði.
Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til byggðaráðs.

Byggðarráð Skagafjarðar - 23. fundur - 23.11.2022

Lagðar fram reglur Skagafjarðar um framkvæmd frístundaþjónustu fyrir fötluð börn og ungmenni samkvæmt lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Reglurnar eru uppfærðar með tilliti til sameiningar sveitarfélaganna í Skagafirði. Reglunum vísað til byggðarráðs frá 6. fundi félagsmála- og tómstundanefndar.
Byggðarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 7. fundur - 14.12.2022

Vísað frá 23. fundi byggðarráðs frá 23. nóvember sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Lagðar fram reglur Skagafjarðar um framkvæmd frístundaþjónustu fyrir fötluð börn og ungmenni samkvæmt lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Reglurnar eru uppfærðar með tilliti til sameiningar sveitarfélaganna í Skagafirði. Reglunum vísað til byggðarráðs frá 6. fundi félagsmála- og tómstundanefndar. Byggðarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar."
Framlagðar reglur bornar upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykktar með níu atkvæðum.