Fara í efni

Leiðbeiningar og fyrirmynd varðandi stefnu um þjónustustig

Málsnúmer 2211172

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 23. fundur - 23.11.2022

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 15. nóvember 2022 frá innviðaráðuneytinu. Vakin er athygli á að Byggðastofnun vinnur nú að gerð leiðbeininga og fyrirmynd varðandi það hvernig sveitarfélög geti útfært stefnu um þjónustustig til byggðarlaga utan stærstu byggðarkjarna viðkomandi sveitarfélags. Tilefnið er nýtt ákvæði í sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011, sem kveður á um að "sveitarstjórn skuli móta stefnu sem sveitarfélagið hyggst halda uppi í byggðum og byggðarlögum fjarri stærstu byggðarkjörnum." Norðurþing varð fyrir valinu sem tilraunasveitarfélag í þessu verkefni og samstarf við sveitarfélagið hófst fljótlega eftir að sú ákvörðun var tekin. Gert er ráð fyrir að verkefninu ljúki 1. desember nk.

Byggðarráð Skagafjarðar - 31. fundur - 18.01.2023

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 13. janúar 2023 frá innviðaráðuneyti, þar sem vakin er athygli á að beiðni innviðaráðuneytisins frá 15. nóvember 2022, vinnur Byggðastofnun að gerð leiðbeininga og fyrirmynd varðandi það hvernig sveitarfélög geti útfært stefnu um þjónustustig til byggðarlaga utan stærstu byggðarkjarna viðkomandi sveitarfélags. Tilefnið er nýtt ákvæði í sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011, sem kveður á um að "sveitarstjórn skuli móta stefnu fyrir komandi ár og næstu þrjú á eftir um það þjónustustig sem sveitarfélagið hyggst halda uppi í byggðum og byggðarlögum fjarri stærstu byggðarkjörnum."
Af óviðráðanlegum orsökum hefur orðið töf á verkefninu en nú er ljóst að leiðbeiningar og fyrirmynd muni liggja fyrir í vor sem sveitarfélög geta nýtt sér til að móta stefnu fyrir næsta ár.