Lagður fram tölvupóstur dagsettur 17. mars 2023 þar sem innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 72/2023, "Drög að stefnu í málefnum sveitarfélaga (hvítbók)". Umsagnarfrestur er til og með 14.04.2023. Byggðarráð Skagafjarðar fagnar hvítbók um sveitarstjórnarmál þar sem teknar eru saman upplýsingar um stöðu íslenskra sveitarfélaga og ráðist í samstillingu á stefnumótun ríkis og sveitarfélaga með heildarhagsmuni sveitarstjórnarstigsins í huga. Byggðarráð er sammála þeirri hugmyndafræði sem birtist um að samhæfa þurfi stefnur og áætlanir ríkisins hvað byggðaáætlun, samgönguáætlun, landsskipulagsstefnu, húsnæðisstefnu og stefnu í sveitarstjórnarmálum varðar. Með slíkri sameiginlegri framtíðarsýn og meginmarkmiðum í framangreindum stefnum ætti að vera unnt að ná sem bestum árangri í málaflokkunum. Mikilvægt er að þessar stefnur og áætlanir vinni raunverulega að framgangi mála, t.d. hvað varðar úrbætur á lýðfræðilegum veikleikum ólíkra landshluta en ljóst er að margar af fyrrgreindum áætlunum og stefnum hafa ekki stutt nægjanlega við þróun innviða og samfélaga á Norðurlandi vestra. Byggðarráð Skagafjarðar tekur einnig undir það sem kemur fram í drögum að stefnunni að fjármál séu eitt brýnasta úrlausnarefni ríkis og sveitarfélaga um þessar mundir enda hafa skyldur og ábyrgð á opinberri þjónustu í auknum mæli flust frá ríki til sveitarfélaga án þess að fullnægjandi tekjustofnar hafi fylgt með. Nauðsynlegt er að styrkja og fjölga tekjustofnum sveitarfélaga til að tryggja fjárhagslega sjálfbærni þeirra. Byggðarráð Skagafjarðar fagnar jafnframt áformum um að útmá svokölluðum gráum svæðum í þjónustuskiptingu á milli ríkis og sveitarfélaga.
Byggðarráð Skagafjarðar fagnar hvítbók um sveitarstjórnarmál þar sem teknar eru saman upplýsingar um stöðu íslenskra sveitarfélaga og ráðist í samstillingu á stefnumótun ríkis og sveitarfélaga með heildarhagsmuni sveitarstjórnarstigsins í huga. Byggðarráð er sammála þeirri hugmyndafræði sem birtist um að samhæfa þurfi stefnur og áætlanir ríkisins hvað byggðaáætlun, samgönguáætlun, landsskipulagsstefnu, húsnæðisstefnu og stefnu í sveitarstjórnarmálum varðar. Með slíkri sameiginlegri framtíðarsýn og meginmarkmiðum í framangreindum stefnum ætti að vera unnt að ná sem bestum árangri í málaflokkunum. Mikilvægt er að þessar stefnur og áætlanir vinni raunverulega að framgangi mála, t.d. hvað varðar úrbætur á lýðfræðilegum veikleikum ólíkra landshluta en ljóst er að margar af fyrrgreindum áætlunum og stefnum hafa ekki stutt nægjanlega við þróun innviða og samfélaga á Norðurlandi vestra.
Byggðarráð Skagafjarðar tekur einnig undir það sem kemur fram í drögum að stefnunni að fjármál séu eitt brýnasta úrlausnarefni ríkis og sveitarfélaga um þessar mundir enda hafa skyldur og ábyrgð á opinberri þjónustu í auknum mæli flust frá ríki til sveitarfélaga án þess að fullnægjandi tekjustofnar hafi fylgt með. Nauðsynlegt er að styrkja og fjölga tekjustofnum sveitarfélaga til að tryggja fjárhagslega sjálfbærni þeirra.
Byggðarráð Skagafjarðar fagnar jafnframt áformum um að útmá svokölluðum gráum svæðum í þjónustuskiptingu á milli ríkis og sveitarfélaga.