Fara í efni

Raftahlíð 79 - Umsókn um breikkun á innkeyrslu

Málsnúmer 2306008

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 27. fundur - 15.06.2023

Guðmundur Magnússon eigandi raðhúsaíbúðar nr. 79 við Raftahlíð á Sauðárkróki óskar eftir heimild til að fá að breikka innkeyrslu að lóðinni.
Sótt er um leyfi til að gera innkeyrslu með sama hætti og gert hefur verið við lóðirnar nr. 77 og 81 við Raftahlíð, þ.e.a.s. með austurmörkum lóðarinnar.

Skipulagsnefnd samþykkir erindið.