Fara í efni

Nestún 18 - Beiðni um frestun á byggingarframkvæmdum

Málsnúmer 2309230

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 35. fundur - 05.10.2023

Skipulagsfulltrúa barst erindi frá Ómari Kjartanssyni fyrir hönd Önnu Maríu Ómarsdóttur lóðarhafa við Nestún 18 á Sauðárkróki þann 22. september síðastliðinn þar sem óskað er eftir frestun til byggingarframkvæmda á lóðinni til 1. mars 2024 ásamt rökstuðningi þess efnis.

Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að veita umbeðinn frest til 1. mars 2024 til að hefja byggingarframkvæmdir.

Sigríður Magnúsdóttir vék af fundi við afgreiðslu erindisins.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 18. fundur - 25.10.2023

Vísað frá 35. fundi skipulagsnefndar frá 10. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar þannig bókað:

"Skipulagsfulltrúa barst erindi frá Ómari Kjartanssyni fyrir hönd Önnu Maríu Ómarsdóttur lóðarhafa við Nestún 18 á Sauðárkróki þann 22. september síðastliðinn þar sem óskað er eftir frestun til byggingarframkvæmda á lóðinni til 1. mars 2024 ásamt rökstuðningi þess efnis.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að veita umbeðinn frest til 1. mars 2024 til að hefja byggingarframkvæmdir.
Sigríður Magnúsdóttir vék af fundi við afgreiðslu erindisins."

Borið upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.