Fara í efni

Umsagnarbeiðni; Tillaga til þingsályktunar um gjaldfrjálsar skólamáltíðir og umgjörð þeirra

Málsnúmer 2312016

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 75. fundur - 08.12.2023

Lagt fram til umsagnar frá velferðarnefnd Alþingis, 402. mál, gjaldfrjálsar skólamáltíðir og umgjörð þeirra. Umsagnarfrestur er til 11. desember 2023.
Byggðaráð tekur undir mikilvægi þess að öll börn fái holla og góða næringu í heilnæmu umhverfi þar sem horft verður til þess að stuðla að góðum og heilbrigðum matarvenjum. Byggðarráð áréttar einnig að nauðsynlegt er að öll börn fái jafnan aðgang að næringarríkum mat enda það hluti að jafnræði á milli barna og stuðlar að aukinni lýðheilsu.
Flest sveitarfélög hafa þann háttinn á að veita tekjuminni foreldrum stuðning með það að markmiði að öll börn fái aðgang að skólamáltíð óháð stöðu. Það að gera skólamáltíðir gjaldfrjálsar fyrir alla foreldra, óháð tekjum er mun stærra verkefni. Liggja þarf fyrir samstaða á milli ríkis og sveitarfélaga um hvernig verkefnið er unnið, hvaða þætti ber að horfa til og með hvaða hætti ríkið muni koma að fjármögnun verkefnisins til lengri tíma. Rétt er að benda á að oft hefur hallað verulega á sveitarfélögin fjárhagslega þegar ákvörðun um aukna þjónustu sveitarfélaga er bundin í lög. Fagnaðarefni er ef ríkisvaldið hyggst tryggja gjaldfrjálsar skólamáltíðir en ef tillagan gengur út á að annað stjórnsýslustig landsins sé enn og aftur að ganga á rétt hins með fyrirmælum um kostnaðarauka er því mótmælt.