Fara í efni

Aðalgata 5 - Sauðárkróksbakarí - Fyrirspurn vegna breytingar á aðalinngangi

Málsnúmer 2406077

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 53. fundur - 27.06.2024

Lagt fram til kynningar fyrirspurn frá lóðahafa Aðalgötu 5 vegna fyrirhugaðar breytingar á aðkomu inn í Sauðárkróksbakarí. Upp hafa komið hugmyndir að færa aðkomu inn í bakaríið á suðurhlið hússins. Helstu ástæður eru bæting á aðkomu fyrir hjólastóla og öryggi gagnvart börnum og öðrum sem fara inn og út úr húsinu. Í stað þess að koma nánast beint út á Aðalgötuna verður aðkoman til suðurs út á gangstétt og útisvæði á lóð við suðurhlið mannvirkisins. Núverandi aðalinngönguhurð til austurs verður lokuð af en þó verður hinni hurðinni á austurhlið haldið opinni upp á öryggi við bruna.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að taka jákvætt í erindið.