Fara í efni

Öldustígur 17 - Lóðarmál

Málsnúmer 2406248

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 53. fundur - 27.06.2024

Helga Sigurbjörnsdóttir óskar eftir með tölvupósti dags. 11.06.2024 heimild til að breyta innkeyslu við Öldustíg 17. Í dag er innkeyrslan frá Sæmundargötu. Óskað er eftir að breytt innkeyrsla komi frá Öldustíg, til móts við innkeyrslu á Öldustíg 16. Jafnframt yrði núverandi innkeyrsla frá Sæmundargötu aflögð.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða breytta innkeyrslu við Öldustíg 17, en bendir á að vinna þarf framkvæmdina í samráði við Veitu- og framkvæmdasvið Skagafjarðar.