Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

59. fundur 13. mars 2025 kl. 08:45 - 09:30 í Ráðhúsi, Skr.
Nefndarmenn
  • Einar Andri Gíslason byggingarfulltrúi
  • Sigurður H Ingvarsson starfsmaður byggingarfulltrúa
Fundargerð ritaði: Einar Andri Gíslason byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Gautland 2 L238491 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2503043Vakta málsnúmer

Sigurður Óli Ólafsson tæknifræðingur sækir f.h. Daða Snæs Skúlasonar um leyfi til að byggja íbúðarhús á lóðinni Gautland 2, L238491 í Fljótum. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af umsækjanda. Uppdrættir í verki 79011201, númer A-100, A-101, A-102 og A-103, dagsettir 26.11.2024. Fyrir liggur samþykki meðeiganda. Byggingin fellur undir umfangsflokk 2. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.

2.Sauðárkrókur Hafnarsvæði L218097 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2503121Vakta málsnúmer

Þórður Karl Gunnarsson tæknifræðingur á Stoð ehf. verkfræðistofu sækir f.h. Hafnarsjóðs Skagafjarðar um leyfi til að byggja masturhús á efri garði Sauðárkrókshafnar. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir af umsækjanda. Uppdrættir í verki 36130002, númer A-100 og A-101, dagsettir 10.03.2025. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.

Fundi slitið - kl. 09:30.