Fara í efni

Gagnaveita Skagafjarðar - hluthafasamkomulag

Málsnúmer 1201158

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 579. fundur - 19.01.2012

Lögð fram drög að hluthafasamkomulagi eigenda Gagnaveitu Skagafjarðar ehf. um breytingu á hlutafé í félaginu og aðrar breytingar á fjárhagsstöðu félagsins.

Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi drög og jafnframt er samþykkt að Ásta Björg Pálmadóttir, sveitarstjóri verði fulltrúi sveitarfélagsins og fari með atkvæðisrétt þess á hluthafafundi sem haldinn verður 1. febrúar n.k.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 286. fundur - 25.01.2012

Forseti leggur til að málinu verði vísað til liðarins, Hluthafasamkomulag, Gagnaveita Skagafjarðar. Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 286. fundur - 25.01.2012

Hluthafasamkomulag eigenda Gagnaveitu Skagafjarðar ehf. um breytingu á hlutafé í félaginu og aðrar breytingar á fjárhagsstöðu félagsins, lagðar fram til samþykktar í sveitarstjórn. Hluthafasamkomulagið borið undir atkvæði og samþykkt samhljóða.