Framlög til eflingar tónlistarnámi
Málsnúmer 1206158
Vakta málsnúmerByggðarráð Svf. Skagafjarðar - 596. fundur - 28.06.2012
Lagt fram til kynningar bréf frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga varðandi framlög úr sjóðnum til eflingar tónlistarnámi og jöfnunar á aðstöðumun nemenda. Tilkynnt er m.a. um að sjóðurinn hafi ekki getað greitt viðmiðunarfjárhæðir samkvæmt samkomulagi við sveitarfélögin og einnig að sjóðurinn sjái sér ekki fært að uppfylla dagsetningamörk núgildandi reglna hvað varðar umsóknir frá sveitarfélögunum fyrir skólaárið 2012-2013. Unnið er að endurskoðun reglnanna.
Fræðslunefnd Svf. Skagafjarðar - 88. fundur - 10.06.2013
Skólastjóri Tónlistarskólans kynnti umsókn um framlög til Jöfnunarsjóðs sbr. 1.grein reglna um framlög til eflingar tónlistarnámi og jöfnunar á aðstöðumun nemenda.
Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 627. fundur - 13.06.2013
Lagt fram til kynningar bréf frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga varðandi framlög úr sjóðnum til eflingar tónlistarnámi og jöfnunar á aðstöðumun nemenda.
Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 303. fundur - 20.06.2013
Afgreiðsla 627. fundar byggðaráðs staðfest á 303. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.
Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 303. fundur - 20.06.2013
Afgreiðsla 88. fundar fræðslunefndar staðfest á 303. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum