Fara í efni

Samráðsvettvangur um aukna hagsæld

Málsnúmer 1305124

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 624. fundur - 15.05.2013

Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar lýsir miklum áhyggjum yfir þeim viðhorfum sem fram koma í tillögum Samráðsvettvangs um aukna hagsæld.
Í tillögum ?samráðsvettvangsins? felst bein aðför að búsetu í hinum dreifðu byggðum landsins. Tillögurnar vega að löggæslu, heilsugæslu og menntamálum á öllum skólastigum. Tillögurnar eru óskiljanlegar í ljósi þess að í kjölfar efnahagskreppunnar þá var niðurskurðarhnífi hins opinbera einkum beitt utan höfuðborgarinnar.
Hjá "samráðsvettvangnum" kemur fram að mikil áhersla hafi verið lögð á breið sjónarmið innan hans, en augljóst er að sjónarmið landsbyggðarinnar hafa algerlega verið sniðgengin. Sérstaklega eru tillögur gegn fámennum barnaskólum harðneskjulegar og furðulegt að telja að hópur manna í æðstu stigum þjóðfélagsins sammælist um að skerðing á grunnmenntun í dreifbýli geti verið ein forsenda hagvaxtar á Íslandi.
Aðkoma forystumanna stjórnmálaflokka sem og Sambands íslenskra sveitarfélaga að þessari tillögugerð veldur vissulega áhyggjum.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 303. fundur - 20.06.2013

Sigurjón Þórðarson sveitarstjórnafulltrúi Frjálslyndra og óháðra lagði fram eftirfarandi bókun:
"Mikilvægt er að fylgja framangreindri bókun byggðarráðs fast eftir á komandi vikum".
Afgreiðsla 624. fundar byggðaráðs staðfest á 303. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.