Borgarmýri 5 - Umsagnarbeiðni vegna tækifærisleyfis
Málsnúmer 1507200
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar - 11. fundur - 07.08.2015
Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi vestra, dagsett 24. júlí sl. þar sem óskað er umsagnar um umsókn Festival Viðburðar kt. 690705-1330. Umsóknin er um tækifærisleyfi vegna Tónlistarhátíðarinnar Gærunnar 2015 sem haldin verður í húsnæði Loðskinns ehf. Borgarmýri 5 á Sauðárkróki dagana 14. og 15. ágúst 2015. Forsvarsmaður er Adam Smári Hermannsson kt. 151288-3329. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsóknina.
Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 705. fundur - 13.08.2015
Lagt fram bréf dagsett 24. júlí 2015 frá sýslumanninum á Norðurlandi vestra þar sem óskað er umsagnar um umsókn Festival Viðburða ehf., kt. 690705-1330 um tækifærisleyfi vegna Tónlistarhátíðarinnar Gærunnar 2015 sem verður í húsnæði Loðskinns ehf, Borgarmýri 5, Sauðárkróki, dagana 14. og 15. ágúst 2015. Forsvarsaðili er Adam Smári Hermannsson, Raftahlíð 53, 550 Sauðárkróki.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.
Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 330. fundur - 19.08.2015
Afgreiðsla 705. fundar byggðaráðs staðfest á 330. fundi sveitarstjórnar 19. ágúst 2015 með níu atkvæðum.