Fara í efni

Gjaldskrá heilsdagsskóla frá 1. janúar 2016

Málsnúmer 1511145

Vakta málsnúmer

Fræðslunefnd Svf. Skagafjarðar - 108. fundur - 19.11.2015

Lagt er til að dvalargjald í heilsdagsskóla hækki um 3.5%. Dvalargjald fyrir hverja klukkustund hækkar úr 226 kr. í 234 kr. Systkinaafsláttur er óbreyttur, 50% fyrir annað barn og 100% fyrir þriðja barn. Nefndin samþykkir tillöguna og vísar henni til byggðarráðs.

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 720. fundur - 26.11.2015

Bókun frá 108. fundi fræðslunefndar, 19. nóvember 2015.

"Lagt er til að dvalargjald í heilsdagsskóla hækki um 3.5%. Dvalargjald fyrir hverja klukkustund hækkar úr 226 kr. í 234 kr. Systkinaafsláttur er óbreyttur, 50% fyrir annað barn og 100% fyrir þriðja barn. Nefndin samþykkir tillöguna og vísar henni til byggðarráðs."

Byggðarráð samþykkir gjaldskrána.

Bjarni Jónsson óskar bókað að hann muni sitja hjá við afgreiðslu málsins í sveitarstjórn.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 334. fundur - 09.12.2015

Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 35 "Gjaldskrá heilsdagsskóla frá 1. janúar 2016" Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 334. fundur - 09.12.2015

Afgreiðsla 108. fundar fræðslunefndar staðfest á 334. fundi sveitarstjórnar 9. desember 2015 með níu atkvæðum.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 334. fundur - 09.12.2015

Lögð fram tillaga um gjaldskrá heilsdagsskóla frá 1. janúar 2016 sem samþykkt var á 226. fundi fræðslunefndar 23. nóvember 2015 og 720. fundi byggðarráðs 26. nóvember 2015.

"Lagt er til að dvalargjald í heilsdagsskóla hækki um 3.5%. Dvalargjald fyrir hverja klukkustund hækkar úr 226 kr. í 234 kr. Systkinaafsláttur er óbreyttur, 50% fyrir annað barn og 100% fyrir þriðja barn."

Framangreind gjaldskrá borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með átta atkvæðum. Bjarni Jónsson óskar bókað að hann sitji hjá.