Fara í efni

Gjaldskrá fæðis til starfsmanna í leik- og grunnskóla frá 1. janúar 2016

Málsnúmer 1511146

Vakta málsnúmer

Fræðslunefnd Svf. Skagafjarðar - 108. fundur - 19.11.2015

Lagt er til að matarverð til starfsmanna verði í samræmi við kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga við stéttarfélög viðkomandi starfsmanna frá og með 1. janúar 2016. Nefndin samþykkir tillöguna og vísar henni til byggðarráðs.

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 720. fundur - 26.11.2015

Bókun frá 108. fundi fræðslunefndar, 19. nóvember 2015.

"Lagt er til að matarverð til starfsmanna verði í samræmi við kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga við stéttarfélög viðkomandi starfsmanna frá og með 1. janúar 2016. Nefndin samþykkir tillöguna og vísar henni til byggðarráðs."

Byggðarráð samþykkir gjaldskrána.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 334. fundur - 09.12.2015

Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 33 "Gjaldskrá fæðis til starfsmanna í leik- og grunnskóla frá 1. janúar 2016" Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 334. fundur - 09.12.2015

Afgreiðsla 108. fundar fræðslunefndar staðfest á 334. fundi sveitarstjórnar 9. desember 2015 með níu atkvæðum.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 334. fundur - 09.12.2015

Lögð fram gjaldskrá fæðis til starfsmanna í leik- og grunnskóla frá 1. janúar 2016 sem samþykkt var á 108. fundi fræðslunefndar, 19. nóvember 2015 og 720. fundi byggðarráðs 26. nóvember 2015.

"Lagt er til að matarverð til starfsmanna verði í samræmi við kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga við stéttarfélög viðkomandi starfsmanna frá og með 1. janúar 2016."

Framangreind gjaldskrá borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.