Fara í efni

Aðalgata 16,Kaffi Krókur - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 1512133

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar - 18. fundur - 21.12.2015

Lagt fram bréf frá sýslumanninum á Norðurlandi vestra, dagsett 16. desember 2015, þar sem óskað er umsagnar um umsókn frá Strá ehf. um rekstrarleyfi fyrir veitingarstaðinn Kaffi Krók Aðalgötu 16 Sauðárkróki. Veitingastaður, flokkur III. Forsvarsmaður er Tómas H. Árdal Lerkihlíð 6 Sauðárkróki. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfis.

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 724. fundur - 07.01.2016

Lagt fram bréf frá sýslumanninum á Norðurlandi vestra, dagsett 16. desember 2015 þar sem óskað er umsagnar um umsókn Tómasar H. Árdal fyrir hönd Stá ehf, kt. 520997-2029 um rekstrarleyfi fyrir veitingastaðinn Kaffi Krók, Aðalgötu 16, 550 Sauðárkróki. Veitingastaður, flokkur III. Forsvarsmaður Tómas H. Árdal. Breyting á rekstraraðila frá og með 1. janúar 2016.
Byggðarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 335. fundur - 20.01.2016

Afgreiðsla 724. fundar byggðaráðs staðfest á 335. fundi sveitarstjórnar 20. janúar 2016 með níu atkvæðum.