Háahlíð 13 - Umsókn um byggingarleyfi.
Málsnúmer 1607037
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar - 33. fundur - 19.08.2016
Tekin fyrir byggingarleyfisumsókn Ásgeirs Björgvins Einarssonar kt. 180257-5359 og Sigríðar Elínar Þórðardóttur kt. 091060-3109, dagsett 8. ágúst 2016. Umsóknin er um leyfi til að byggja stoðveggi á lóðarmörkum vestur- og suðurhluta lóðarinnar Háahlíð 13 á Sauðárkróki, ásamt því að steypa veggi fyrir verönd við suðaustur innhorn hússins. Framlagðir uppdrættir eru gerðir á teiknistofunni Húsagerð og Skipulag af Gunnari Einarssyni kt. 020550-2369 og Tæknivangi ehf. af Magnúsi Gylfasyni kt. 201251-4199, dagsettir í júní og júlí 2016. Fyrir liggur samþykki eiganda aðliggjandi lóða. Erindið samþykkt. Byggingarleyfi veitt.