Lagt var fyrir fundinn erindi frá Trausta Jóel Helgasyni, formanni Húsnæðissamvinnufélags Skagafjarðar, fyrir hönd íbúa í Sauðármýri 3. Í erindinu er óskað eftir því að Sveitarfélagið gangi betur frá svæðinu í kringum Sauðá á milli Skagfirðingabrautar og Borgargerðis, sunnan við Sauðármýri 3. Nefndin þakkar fyrir erindið og felur sviðstjóra að afmarka svæðið frekar og koma með tillögu að úrbótum fyrir gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017.
Nefndin þakkar fyrir erindið og felur sviðstjóra að afmarka svæðið frekar og koma með tillögu að úrbótum fyrir gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017.