Fara í efni

Ábyrgð á lántöku Norðurár bs. 2016

Málsnúmer 1609133

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 757. fundur - 15.09.2016

Lagt fram erindi dagsett 8. september 2016 frá stjórn Norðurár bs. þess efnis að sveitarfélagið veiti byggðasamlaginu einfalda ábyrgð á allt að 250 milljón króna láni frá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. og veð í tekjum, í hlutfalli við skiptingu stofnfjár í Norðurá bs. pr. 31.12. 2009, eða 64,8%. Lánið er ætlað til framkvæmda við stækkunar urðunarhólfs í Stekkjarvík.

Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að afgreiða málið með eftirfarandi bókun:

Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkir hér með að veita einfalda ábyrgð vegna lántöku Norðurár bs. hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð 250.000.000 kr. til allt að 8 ára. Er ábyrgð þessi veitt sbr. heimild í 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, og er hún óskipt (in solidum) gagnvart kröfuhafa, en innbyrðis skiptist hún í hlutfalli við eignarhluti í Norðurá bs. Til tryggingar ábyrgðinni standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sömu laga. Ábyrgðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar sem hlýst af vanskilum. Er lánið tekið til gerðar urðunarstaðarins Stekkjarvíkur við Sölvabakka sem fellur undir lánshæf verkefni sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar skuldbindur hér með sveitarfélagið sem eiganda Norðurár bs. til að breyta ekki ákvæði samþykkta Norðurár bs. sem leggur hömlur á eignarhald að félaginu að því leyti að félagið megi ekki fara að neinu leyti til einkaaðila.
Fari svo að Sveitarfélagið Skagafjörður selji eignarhlut í Norðurá bs. til annarra opinberra aðila, skuldbindur Sveitarfélagið Skagafjörður sig til að sjá til þess að jafnframt yfirtaki nýr eigandi á sig ábyrgð á láninu að sínum hluta.
Jafnframt er Ástu Pálmadóttur, kt. 040764-2839 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess að staðfesta f.h. Sveitarfélagsins Skagafjarðar veitingu ofangreindrar ábyrgðar og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast veitingu tryggingar þessarar.

Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 346. fundur - 20.09.2016

Samþykkt var á 757. fundi byggðarráðs þann 15. september 2016 að vísa til samþykktar sveitarstjórnar eftirfarandi bókun, er varðar erindi stjórnar Norðurár bs. frá 8.september 2016.

Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkir hér með að veita einfalda ábyrgð vegna lántöku Norðurár bs. hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð 250.000.000 kr. til allt að 8 ára. Er ábyrgð þessi veitt sbr. heimild í 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, og er hún óskipt (in solidum) gagnvart kröfuhafa, en innbyrðis skiptist hún í hlutfalli við eignarhluti í Norðurá bs. Til tryggingar ábyrgðinni standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sömu laga. Ábyrgðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar sem hlýst af vanskilum. Er lánið tekið til gerðar urðunarstaðarins Stekkjarvíkur við Sölvabakka sem fellur undir lánshæf verkefni sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar skuldbindur hér með sveitarfélagið sem eiganda Norðurár bs. til að breyta ekki ákvæði samþykkta Norðurár bs. sem leggur hömlur á eignarhald að félaginu að því leyti að félagið megi ekki fara að neinu leyti til einkaaðila.

Fari svo að Sveitarfélagið Skagafjörður selji eignarhlut í Norðurá bs. til annarra opinberra aðila, skuldbindur Sveitarfélagið Skagafjörður sig til að sjá til þess að jafnframt yfirtaki nýr eigandi á sig ábyrgð á láninu að sínum hluta.

Jafnframt er Ástu Pálmadóttur, kt. 040764-2839 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess að staðfesta f.h. Sveitarfélagsins Skagafjarðar veitingu ofangreindrar ábyrgðar og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast veitingu tryggingar þessarar.

Ofangreind bókun borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar og samþykkt með átta atkvæðum.