Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar - 766

Málsnúmer 1611022F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 349. fundur - 14.12.2016

Fundargerð 766. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 349. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 766 Tillaga um gjaldskrá Byggðasafns Skagfirðinga lögð fram. Málið áður á dagskrá 764. fundar byggðarráðs, sem samþykkti að vísa tillögu Bjarna Jónssonar til afgreiðslu atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar. Byggðarráð samþykkir að taka tillöguna til afgreiðslu.
    Byggðarráð samþykkir að aðgangur að Byggðasafni Skagfirðinga í Glaumbæ verði á árinu 2017, 1.600 kr. fyrir einstaklinga, 1.200 kr. fyrir hópa og námsmenn og gjaldfrjáls fyrir 17 ára og yngri. Byggðarráð samþykkir jafnframt að á árinu 2018 verði aðgangur að Byggðasafni Skagfirðinga í Glaumbæ 1.700 kr. fyrir einstaklinga, 1.300 kr. fyrir hópa og námsmenn og gjaldfrjáls fyrir 17 ára og yngri.
    Bjarni Jónsson gerir tillögu um að aðgangseyrir fyrir hópa verði 1.500 kr. pr. mann á árinu 2018. Byggðarráð samþykkir tillöguna.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 16 á dagskrá fundarins, Gjaldskrá byggðasafns Skagfirðinga 2017. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 766 Lögð fram tillaga um eftirfarandi breytingu á gjaldskrá íþróttamannvirkja fyrir árið 2017 frá því sem samþykkt var á 764. fundi byggðarráðs.
    Byggðarráð samþykkir að leiga pr. skipti verði í íþróttahúsi Sauðárkróks, 3/3 salur 10.500 kr., 2/3 salur 7.900 kr., 1/3 salur 4.100 kr. og leiga pr. skipti í Íþróttamiðstöðinni Varmahlíð, 1/1 salur 7.500 kr.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 17 á dagskrá fundarins, Gjaldskrá 2017 - Íþróttamannvirki. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 766 Lagt fram bréf dagsett 26. október 2016 frá aðalstjórn Ungmennafélagsins Tindastóls varðandi gæslu í íþróttahúsinu á Sauðárkróki eftir skóla.
    Byggðarráð samþykkir að auka gæslu í íþróttahúsi þannig að það séu starfsmenn af báðum kynjum á vakt virka daga til kl. 16 á skólatíma. Byggðarráð samþykkir að vísa erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017.
    Bókun fundar Afgreiðsla 766. fundar byggðarráðs staðfest á 349. fundi sveitarstjórnar 14. desember 2016 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 766 Lagt fram bréf dagsett 1. apríl 2016 frá aðalstjórn Ungmennafélagsins Tindastóls vegna skráðs eignarhlutar ungmennafélagsins í Félagsheimilinu Bifröst, Sauðárkróki.
    Ungmennafélagið Tindastóll afhendir 5% eignarhlut sinn í Félagsheimilinu Bifröst til Sveitarfélagsins Skagafjarðar endurgjaldslaust. Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að ganga frá samningum þar um.
    Bókun fundar Afgreiðsla 766. fundar byggðarráðs staðfest á 349. fundi sveitarstjórnar 14. desember 2016 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 766 Lagt fram bréf dagsett 1. apríl 2016 frá aðalstjórn Ungmennafélagsins Tindastóls varðandi ósk um að fjárhagsstyrkur sveitarfélagsins til ungmennafélagsins verði hækkaður frá því sem verið hefur.

    Byggðarráð samþykkir að vísa erindinu til fjárhagsáætlunargerðar ársins 2017.
    Bókun fundar Afgreiðsla 766. fundar byggðarráðs staðfest á 349. fundi sveitarstjórnar 14. desember 2016 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 766 Lagt fram bréf dagsett 26. október 2016 frá húsnefnd Félagsheimilisins Melsgils varðandi viðhald hússins og ósk um fjármagn til þess af fjárhagsáætlun ársins 2017. Byggðarráð samþykkir að vísa erindinu til fjárhagsáætlunargerðar ársins 2017. Bókun fundar Afgreiðsla 766. fundar byggðarráðs staðfest á 349. fundi sveitarstjórnar 14. desember 2016 með níu atkvæðum.
  • .7 1611247 Trúnaðarmál
    Byggðarráð Skagafjarðar - 766 Sjá trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 766. fundar byggðarráðs staðfest á 349. fundi sveitarstjórnar 14. desember 2016 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 766 Lögð fram tillaga að viðauka nr. 8 við fjárhagáætlun ársins 2016 um að fjárfestingarliður eignasjóðs verði hækkaður um 12.495.000 kr. Hækkun framkvæmdafjár verði mætt með lækkun á handbæru fé.
    Byggarráð samþykkir að fresta málinu til næsta fundar.

    Stefán Vagn Stefánsson vék af fundi undir þessum dagskrárlið og inn kom varamaður hans Viggó Jónsson.
    Bókun fundar Afgreiðsla 766. fundar byggðarráðs staðfest á 349. fundi sveitarstjórnar 14. desember 2016 með átta atkvæðum. Stefán Vagn Stefánsson óskar bókað að hann taki ekki þátt í atkvæðagreiðslunni.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 766 Lagt fram bréf frá stjórn Mótunar ehf um að Sveitarfélagið Skagafjörður leggi fram aukið hlutafé.

    Byggðarráð samþykkir að fela endurskoðanda sveitarfélagsins að leggja mat á og greina stöðu og fjárhagslegar skuldbindingar sveitarfélagsins gagnvart Mótun ehf. áður en afstaða er tekin til þess hvort veita eigi heimildir til að leggja Mótun ehf. til meira hlutafé en orðið er.

    Stefán Vagna Stefánsson vék af fundi undir þessum dagskrárlið og inn koma varamaður hans Viggó Jónsson.
    Bókun fundar Afgreiðsla 766. fundar byggðarráðs staðfest á 349. fundi sveitarstjórnar 14. desember 2016 með átta atkvæðum. Stefán Vagn Stefánsson óskar bókað að hann taki ekki þátt í atkvæðagreiðslunni.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 766 Lögð fram tillaga um að gerð verði breyting á framkvæmdaáætlun eignasjóðs 2016 þannig að 140 milljónir króna verði fluttar af framkvæmdum við sundlaug á Sauðárkróki yfir á nýtt verkefni, gervigrasvöll á íþróttasvæðinu á Sauðárkróki. Hönnun við breytingar á Sundlaug Sauðárkróks standa enn yfir og ekki verður mögulegt að hefja framkvæmdir við hana fyrr en á árinu 2017. Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 18 á dagskrá fundarins, Viðauki 9 við fjárhagsáætlun 2016. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 766 Farið yfir drög að hönnun að gervigrasvelli á Sauðárkróki. Byggðarráð samþykkir halda áfram miðað við fyrirliggjandi drög. Bókun fundar Afgreiðsla 766. fundar byggðarráðs staðfest á 349. fundi sveitarstjórnar 14. desember 2016 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 766 Lagt fram bréf dagsett 22. nóvember 2016 frá Olíudreifingu ehf. varðandi lóð 146715 á Hofsósi. Óskar félagið eftir yfirlýsingu sveitarfélagsins á því að sveitarfélagið hafi yfirtekið lóðina með öllu því sem henni tilheyrir og geri ekki frekari kröfur á hendur Olíudreifingar vegna hennar.
    Byggðarráð samþykkir að gefa út yfirlýsingu til Olíudreifingar og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að ljúka málinu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 766. fundar byggðarráðs staðfest á 349. fundi sveitarstjórnar 14. desember 2016 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 766 Farið yfir drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2017, nýframkvæmdir og viðhald. Bókun fundar Afgreiðsla 766. fundar byggðarráðs staðfest á 349. fundi sveitarstjórnar 14. desember 2016 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 766 Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 18. nóvember 2016 frá Landsneti hf varðandi tillögu að kerfisáætlun 2016-2025 um áætlaða þróun notkunar og framleiðslu raforku tengdri flutningskerfinu, auk þeirrar uppbyggingar sem ráðgerð er á meginflutningskerfinu. Bókun fundar Lagt fram til kynningar á 349. fundi sveitarstjórnar 14. desember 2016
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 766 Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 25. nóvember 2016 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi Sveitarstjórnarþing Evrópuráðsins.

    Bókun fundar Lagt fram til kynningar á 349. fundi sveitarstjórnar 14. desember 2016
  • .16 1611283 Verstöðin Ísland
    Byggðarráð Skagafjarðar - 766 Lögð fram til kynningar samantekt frá Íslenska sjávarklasanum Verstöðin Ísland: Hagræðing og landfræðileg samþjöppun í íslenskum sjávarútvegi 1993-2013. Bókun fundar Lagt fram til kynningar á 349. fundi sveitarstjórnar 14. desember 2016