Fara í efni

Viðauki 9 við fjárhagsáætlun 2016

Málsnúmer 1611297

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 766. fundur - 01.12.2016

Lögð fram tillaga um að gerð verði breyting á framkvæmdaáætlun eignasjóðs 2016 þannig að 140 milljónir króna verði fluttar af framkvæmdum við sundlaug á Sauðárkróki yfir á nýtt verkefni, gervigrasvöll á íþróttasvæðinu á Sauðárkróki. Hönnun við breytingar á Sundlaug Sauðárkróks standa enn yfir og ekki verður mögulegt að hefja framkvæmdir við hana fyrr en á árinu 2017. Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 349. fundur - 14.12.2016

Vísað til afgreiðslu sveitarstjórnar frá 766. fundi byggðarráðs þann 1. desember 2016.



"Lögð fram tillaga um að gerð verði breyting á framkvæmdaáætlun eignasjóðs 2016 þannig að 140 milljónir króna verði fluttar af framkvæmdum við sundlaug á Sauðárkróki yfir á nýtt verkefni, gervigrasvöll á íþróttasvæðinu á Sauðárkróki. Hönnun við breytingar á Sundlaug Sauðárkróks standa enn yfir og ekki verður mögulegt að hefja framkvæmdir við hana fyrr en á árinu 2017."



Tillagan borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.